Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Oddastefna 2015, fimmtudag 28. júní nk.

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
28. maí 2015 - 13:15 til 17:45
Nánari staðsetning: 
Landgræðsla ríkisins, Gunnarsholti á Rangárvöllum, Rangárþingi
Sæmundur á selnum, Oddakirkja og Eyjafjallajökull 21.4.2010. Ljósm. Þór Jakobsson

Oddastefna, árlegt málþing Oddafélagsins, samtaka áhugamanna um endurreisn fræðaseturs að Odda á Rangárvöllum, hin tuttugasta og þriðja frá 1992.

ALLIR VELKOMNIR!

D A G S K R Á

Fundarstjóri: Drífa Hjartardóttir

13:15  Setning: Þór Jakobsson, formaður Oddafélagsins

13:20  Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri og Oddafélagsmaður frá fyrstu tíð samþykkir beiðni stjórnar félagsins að gerast þriðji heiðursfélagi Oddafélagsins.  Hinir eru Jakobína Erlendsdóttir frá Odda og Þórður Tómasson í Skógum.                             

13:30  Sveinn Runólfsson:  Ævistarf í fremstu víglínu. Landgræðsla ríkisins í hálfa öld.

14:15  Ágúst Sigurðsson sveitarstjóri Rangárþings ytra:  Skipulag í Rangárþingi ytra með tilliti til framtíðarhlutverks Oddastaðar á Suðurlandi.

14:35  Sr. Guðbjörg Arnardóttir:  Umhverfi , umferð og athafnir í Odda á Rangárvöllum.

14:45 Kaffihlé. Góðgjörðir að jafnvirði þúsund-króna seðils, gefnum út af Seðlabanka Íslands 22. maí sem er Sæmundardagur, dánardagur Sæmundar fróða.  Oddastefnugestir skrafa saman um Odda fyrr og nú.

15:30  Páll Imsland jarðfræðingur:   Náttúrufarsleg þróun við Landeyja-tanga og strandferlin sem þar eru að verki og valda því að höfnin virkar ekki.
16:05  Ragnar Önundarson:  Sálfræði Egils sögu. 
16:15 Þór Jakobsson:  Sæmundarvellir umhverfis Odda.  Sjö listir. Sjö hús.

16:30 Málþingi Oddastefnu í Frægarði slitið. Haldið í SAGNAGARÐ.

16:45-17:45 Heimsókn í SAGNAGARÐ, fræðslu- og kynningarsetur Landgræðslu ríkisins í Gunnarsholti.

17:45 Gestgjöfum þakkað og Oddastefnugestir halda heim, margs vísari.
Þess má til gamans geta að fyrirlesarar og fundarstjóri Oddastefnu 2015 eru allir í Oddafélaginu.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012