Hvenær hefst þessi viðburður:
19. maí 2015 - 13:00 til 15:00
Staðsetning viðburðar:
Nánari staðsetning:
Stofa 343 á 3. hæð

Þriðjudaginn 19. maí, kl. 13:00 mun Hörður Bjarnason gangast undir
meistarapróf við Læknadeild Háskóla Íslands og halda fyrirlestur um verkefni sitt:
„Litningabreytingar af völdum Mitomycin C í BRCA2 arfblendnum frumum.“
“Mitomycin C sensitivity and chromosomal alterations in BRCA2 mutated cells.”
Umsjónarkennari: Jórunn Erla Eyfjörð
Leiðbeinandi: Sigríður Klara Böðvarsdóttir
Þriðji maður í MS-nefnd: Margrét Steinarsdóttir
Prófdómarar: Jón Jóhannes Jónsson og Þorkell Guðjónsson
Prófstjóri: Helga M. Ögmundsdóttir
Prófið verður í kennslusal Læknadeildar á 3. hæð, stofu 343 í Læknagarði og er öllum opið