Hvenær hefst þessi viðburður:
20. september 2013 - 9:00 til 18:00

Alþjóðleg ráðstefna á sviði erfðarmála verður haldin dagana 19.-21. september nk. á vegum Háskóla Íslands. Ráðstefnan er árleg vinnustofa rannsóknanets fræðimanna sem stunda rannsóknir á upprunatungumálum innflytjenda og afkomenda þeirra.
Aðalfyrirlesari á ráðstefnunni er Maria Polinsky, prófessor í málvísindum við Harvard-háskóla. Fyrirlestrar og umræður fara fram á ensku.
Ráðstefnan er styrkt af Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum, Hugvísindastofnun, Málvísindastofnun Háskóla Íslands og Þjóðminjasafni Íslands.
Nánari upplýsingar um vinnustofuna og fyrirlesara má finna á heimasíðu ráðstefnunnar.