Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

„Góða þökk tilheyrendur, bestu lesendur, öngva skrifari“ Málþing um handritamenningu síðari alda

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
9. maí 2015 - 10:15
Háskóli Íslands

Í ráðstefnusal Þjóðarbókhlöðu laugardaginn 9. maí 2015 kl. 10:15‒16:30

Málþing til kynningar á niðurstöðum rannsókna sem unnar hafa verið innan fjögurra stórra rannsóknaverkefna styrkt af Rannsóknasjóði á árunum 2010‒15. Rannsókna­verk­efninin eru Prentsmiðja fólksins: Handrita- og bókmenning síðari alda (verkefnastjóri: Matthew Driscoll); Menningarlegt og félagslegt hlutverk íslenskra kvæða- og sálmahandrita eftir siðskipti(verkefnastjóri: Margrét Eggertsdóttir); Kvæðabók sr. Ólafs Jónssonar á Sönd­um: Greining, samhengi, dreifing (verkefnastjóri: Árni Heimir Ingólfsson); Margbreytileiki Njáls sögu (verkefnastjóri: Svanhildur Óskarsdóttir). Verkefnin eiga það sameiginlegt að beinast að handritum og hand­ritamenningu 17., 18. og 19. aldar, en efni og efnistök eru fjölbreytt. Meðal rannsóknarverkefna eru Njáluhandrit frá síðari öldum, teikningar og tónlist í hand­ritum, viðtök­ur og dreifing, tækifæriskvæði, alþýðufræðimenn og handritaskrifarar 19. aldar, lítt þekktar biblíuþýðingar, félagslegt og menningarlegt hlutverk kvæðahandrita, svo nokkuð sé nefnt. Rannsóknirnar voru unnar á vegum Stofnunar Árna Magnússonar í íslensk­um fræðum, Árnasafns í Kaupmannahöfn og ReykjavíkurAkademíunnar með aðild Landsbókasafns Íslands ‒ Háskólabókasafns. Alls tóku 22 fræðimenn og stúdentar þátt í verkefnunum.

DAGSKRÁ

10:15‒10:20   Bragi Þorgrímur Ólafsson fagstjóri handritasafns Landsbókasafns Íslands ‒ Háskólabókasafns setur málþingið

10:20‒10:50   Clarence E. Glad: Íslensk biblíuhandrit

10:50‒11:20   Svanhildur Óskarsdóttir: Njála á nýöld: Vanrækt handrit Njáls sögu

tekin til skoðunar

11:20‒11:40   Kaffihlé

11:40‒12:10   Þorsteinn Surmeli: Í hjáverkum teiknað: Um myndir við Njálu

í sagnahandriti frá 19. öld

12:10‒13:00   Hádegishlé

13:00‒13:30   Þórunn Sigurðardóttir: „Kostgæfilega samanhent og aðdregin“:

 Hvernig varðveittust kvæðasöfn skálda?

13:30‒14:00   Margrét Eggertsdóttir: Handritið sem söngbók, dægrastytting

 og dyggðaspegill

14:00‒14:30   Guðrún Laufey Guðmundsdóttir og Ingibjörg Eyþórsdóttir: Kvæðabók

sr. Ólafs Jónssonar á Söndum: Greining, samhengi, dreifing

14:30‒14:45   Bára Grímsdóttir og Chris Foster leika lög eftir sr. Ólaf Jónsson á Söndum

14:45‒15:00   Kaffihlé

15:00‒15:30   Sigurður Gylfi Magnússon: Hugtakið rými í handritafræðum verðurri málstofu verður si- og heimspekideild Hsíðari alda

15:30‒16:00   Matthew Driscoll: Til gamans og dægrastyttingar:

Handrit Guðbrands á Hvítadal

16:00‒16:30   Davíð Ólafsson: Síðbúnir miðaldamenn eða lifandi þátttökumenning: Hugleiðingar um handritamenningu síðari alda

Ráðstefnustjóri: Örn Hrafnkelsson, sviðsstjóri varðveislu og stafrænnar endurgerðar hjá Landsbókasafni Íslands ‒ Háskólabókasafni

Allir velkomnir.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012