Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Vísindi á mannamáli: Ísland - Suðupottur fuglaflensu

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
5. maí 2015 - 12:10 til 13:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Hátíðasalur
Háskóli Íslands

Gunnar Þór Hallgrímsson, dósent í dýrafræði við Líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands, mun fjalla um rannsóknir á veirum í farfuglum sem koma hingað til lands í sjötta erindi fyrirlestraraðarinnar Vísindi á mannamáli í Háskóla Íslands. Niðurstöður þessara alþjóðlegu rannsókna hafa vakið athygli víða um heim. Erindið verður í Hátíðasal Háskóla Íslands þriðjudaginn 5. maí nk. kl. 12.10.

 

Í kjölfar faraldurs á fuglaflensu af stofni H5N1 fyrir nokkrum árum jókst áhugi á flensum í fuglum um allan heim. Helstu áhyggjur manna snúa að hættu vegna dauða á alifuglum og mögulega ógn sem getur stafað af því ef banvænar veirur breytast og geta smitast á milli manna. Þó fuglaflensa og H5N1 séu gjarnan álitin sama fyrirbærið í almennri umræðu er reyndin sú að fjölmargar gerðir fuglaflensuveira finnast bæði í villtum fuglum og alifuglum. Sumar veiranna eru hættulegar fuglunum en aðrar eru vægar, þannig að sumir sýktir fuglar sýna engin merki um flensu.

Í erindinu mun Gunnar Þór Hallgrímsson, fjalla um rannsóknir sínar og samstarfsfélaga sem á síðustu árum hafa skoðað tíðni og gerðir fuglaflensuveira í fuglum á Íslandi. Í fuglunum fundust margar gerðir veira sem eiga bæði uppruna til Evrópu og Ameríku. Rannsóknirnar leiddu meðal annars í ljós að Ísland er eins konar suðupottur fyrir fuglaflensur frá mismunandi heimssvæðum þar sem þær blandast og mynda nýjar gerðir veira. Ljóst er að Ísland getur virkað eins og stökkpallur fyrir fuglaflensur á milli Evrasíu og Ameríku. Í rannsóknunum fundust m.a. vægar gerðir af H5N1 (í vaðfugli) og H5N2 (í máfi) fuglaflensuveirum.

Í erindinu verður farið yfir hvaða fuglategundir það eru sem líklegastar er að flytja fuglaflensuveirur til og frá Íslandi með því að rýna í lífshætti og farmynstur fugla. Einnig verður rætt um hvaða áhrif flensur hafa á villta fugla og hvort mönnum stafi raunveruleg ógn af fuglaflensu hér á landi.

Um Gunnar Þór  Hallgrímsson
Gunnar Þór Hallgrímsson er afkastamikill ungur vísindamaður. Hann hefur verið verðlaunaður fyrir rannsóknir sínar sem hafa vakið athygli víða um heim. Gunnar Þór hefur verið dósent í dýrafræði við Háskóla Íslands frá árinu 2014. Gunnar Þór lauk doktorsprófi í líffræði frá Háskóla Íslands árið 2011 en ritgerð hans bar heitið Ecological constraints on two species of large gulls. Hann brautskráðist með BS-gráðu í líffræði frá Háskóla Íslands árið 2004. Gunnar Þór var forstöðumaður Náttúrustofu Suðvesturlands frá 2012 til 2014 og hafði þá umsjón með rekstri stofunnar, stefnumótun hennar og rannsóknum. Gunnar Þór var á undan sérfræðingur á Náttúrustofu Reykjaness frá árinu 2005 til 2012. Þar vann hann margvísleg verkefni, aðallega tengdum rannsóknum á fuglum og refum.

Um fyrirlestraröðina
Vísindi á mannamáli er fyrirlestraröð Háskóla Íslands sem hófst haustið 2014 að frumkvæði Lífvísindaseturs og Líffræðistofu Háskóla Íslands. Markmiðið er að varpa ljósi á það hvernig vísindamenn háskólans reyna að afhjúpa leyndardóma náttúrunnar og hvaða þýðingu vísindarannsóknir hafa fyrir daglegt líf fólks og atvinnulíf í landinu.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012