
Fyrirlesari: Karl Skírnisson, sníkjudýrafræðingur á Keldum.
Heiti erindis: Um sníkjudýr rjúpunnar.
Árið 2006 hófust rannsóknir á heilbrigði rjúpunnar í samvinnu sérfræðinga á Tilraunastöðinni á Keldum og á Náttúrufræðistofnun Íslands. Síðan hafa árlega verið rannsakaðar 100 rjúpur sem skotnar hafa verið í rannsóknarskyni í Þingeyjarsýslu í byrjun október ár hvert. Sérfræðingar við fleiri stofnanir hafa bæst í hópinn eftir því sem árin hafa liðið og nokkrir nemar við Háskóla Íslands, sem og við erlenda háskóla, hafa tekið afmarkaða verkhluta sem námsverkefni. Í erindinu verður fjallað um sníkjudýr íslensku rjúpunnar. Hér hafa þegar fundist 18 tegundir sníkjudýra og voru margar þeirra áður ókunnar í vísindaheiminum. Tekin verða valin dæmi um breytingar á smittíðni undanfarinna ára og farið verður í lífsferla og líffræði valinna tegunda.