Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Hvernig metum við hið ómetanlega? Auðlindir og nýting þeirra

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
16. apríl 2015 - 10:00 til 17. apríl 2015 - 15:30
Nánari staðsetning: 
Háskólinn á Hólum
Háskóli Íslands

Guðbrandsstofnun í samstarfi við Ferðamálastofu, Landvernd og Orkustofnun standa að ráðstefnu um náttúruna og auðlindanýtingu. Ráðstefnan verður haldin á Hólum í Hjaltadal 16.- 17. apríl. Guðbrandsstofnun er samstarfsverkefni Háskóla Íslands, Háskólans á Hólum og þjóðkirkjunnar.

Ráðstefnugjald er 4.000 kr. Innifalið í því er hádegisverður og kaffi, báða dagana. Skráning á ráðstefnuna er á slóðinni: http://goo.gl/forms/NjHACjJYdI
Allar nánari upplýsingar veita Erla B. Örnólfsdóttir (erlabjork@holar.is) og Hjalti Hugason (hhugason@hi.is). Ráðstefnugestir greiða sjálfir fyrir þjónustu vegna þátttöku í ráðstefnunni. Ferðaþjónusta er á Hólum. Kostnaður við gistingu og mat er sem hér segir: Gisting í tveggja manna herbergi er 6.000 kr. nóttin á mann en eins manns herbergi kostar kr. 7.500, morgunmatur innifalinn. Kvöldverður á fimmtudag kostar 5.500 kr. Bókun fyrir gistingu og mat er hjá: Ferðaþjónustunni á Hólum booking@holar.is

Dagskrá 16. apríl:

  • 9:00-10:00 Morgunverður
  • 10:00-10:30 Setning ráðstefnunnar sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir, vígslubiskup
  • 10:30-11:30 Sólveig Anna Bóasdóttir Hið ómetanlega: Er náttúran og auðlindirnar ómetanlegar? Hvers vegna ef svo er? Hvað merkir ómetanlegt? Hvernig metum við, virðum og lifum með hinu ómetanlega?
  • 11:30-13:00 Umræður, hádegisverður
  • 13:00-15:00 Auðlindir og ábyrgð: Hvað gerir auðlind? Hvenær hættir landssvæði að vera bara til – og fer að vera til fyrir tiltekna hagsmuni? Hver er ábyrgð okkar í því ferli? Anna Dóra Sæþórsdóttir, Háskóla Íslands Arnheiður Eyþórsdóttir, Háskólanum á Akureyri Hjalti Hugason, Háskóla Íslands Árni Einarsson, Náttúrurannsóknastöðinni við Mývatn
  • 15:00-16:00 Umræður og kaffi
  • 16:00-18:00 Auðlindanýting í hnattrænu samhengi: Nærumhverfi-þjóðarumhverfi-heimsumhverfi– hvaða skuldbindingar, réttindi og mögulegur ágreiningur tengjast misþröngri sýn á auðlindanýtingu? Georgette Leah Burns, Háskólanum á Hólum og Selasetri Íslands Ágúst Valfells, Háskólanum í Reykjavík Guðbjörg R. Jóhannesdóttir, Háskóla Íslands
  • 18:30 Pétur Gunnarsson Hvernig metum við hið ómetanlega
  • 19:30 Kvöldverður úr matarkistu Skagafjarðar

Dagskrá 17. apríl:

  • 8:00-9:00 Morgunverður
  • 9:00-11:00 Endurnýjanleiki og sjálfbærni: "Svört" eða "hvít" náttúruvernd; nýting og varðveisla auðlinda – mismunandi sjónarmið? Manngert umhverfi og náttúra – hvenær rennur þetta í eitt? Ólöf Ýrr Atladóttir, ferðamálastjóri Daði Már Kristófersson, Háskóla Íslands Hilmar J. Malmquist, Náttúruminjasafni Íslands
  • 11:00-13:00 Umræður, hádegisverður
  • 13:00-15:00 Kerfisvöld-þjóðarhagur: Kerfi hverra, skipuð af hverjum og fyrir hverja? Árekstrar við þjóðarhag – í nútíð og framtíð? Takmörkun möguleika eða útvíkkun? Kristinn Einarsson, Orkustofnun Sólveig Anna Bóasdóttir, Háskóla Íslands Ásdís Hlökk Theodórsdóttir, Skipulagsstofnun
  • 15:00-15:30 Umræður og ráðstefnuslit, kaffi

Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012