Hvenær hefst þessi viðburður:
17. apríl 2015 - 11:00 til 12:00
Staðsetning viðburðar:
Nánari staðsetning:
Fundarherbergi á 3. hæð.

Sveinn Valfells, eðlisfræðingur, flytur erindi á málstofu Hagfræðideildar.
Myntslátta Bitcoin rafeyrisins á sér stað þegar færsluskrá hans er uppfærð, á um 10 mínútna fresti. Leitendur (e. miners) keppast við að finna reiknivörpun sem vottar nýjar færslur og leysa til sín nýja Bitcoin.
Um 12 MW af orku eru nú notuð í íslenskum gagnaverum í þessu skyni. Við skilgreinum hagnaðarfall leitenda og spáum í þróun á þessum nýja markaði.
Allir velkomnir.