
Hildur Sigurðardóttir flytur fyrirlestur um verkefni sitt til meistaraprófs í umhverfisverkfræði. Verkefnið ber heitið Hagkvæmnisathugun sporbundinna samgangna á höfuðborgarsvæðinu.
Ágrip
Verkefnið felst í því að gera hagkvæmnislíkan fyrir sporbundnar almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu og prófa síðan líkanið á tilbúnu léttlestarkerfi fyrir svæðið. Líkanið er blanda af hefðbundinni kostnaðar-/ábatagreiningu þeirra þátta sem hefðbundið er að meðhöndla og þeirra þátta sem að jafnaði er erfitt að meta til fjár. Sýnd er tillaga að lestarkerfi, metinn stofn- og rekstrarkostnaður og reiknaður tímakostnaður allra ferða. Þá er lagt mat á þjóðhagslegan ábata, þar með talinn jákvæð áhrif vegna minni mengunar, minni fjárfestinga í gatnakerfi og farartækjum sem og heilsufarslegan ábata af minni umferð bíla en aukinni notkun hjóla og almenningfarartækja.
Leiðbeinendur eru Sigurður Erlingsson prófessor og Þorsteinn Þorsteinsson aðjúnkt.
Prófdómari er Lilja Guðríður Karlsdóttir verkfræðingur.