Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Fyrirlestur um fantasíu og töfraraunsæi í bókmenntum

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
27. mars 2015 - 15:00 til 16:30
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Stofa 102
Mathilde_Walter_Clark

Danski rithöfundurinn Mathilde Walter Clark heldur hádegisfyrirlestur á vegum Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum um fantasíu og töfraraunsæi í bókmenntum. Fyrirlesturinn ber yfirskriftina „Hvordan skriver man sig frem til virkeligheden?“ og fer fram á dönsku. Sérstakur viðmælandi er Einar Már Guðmundsson rithöfundur. Kynnir er Gísli Magnússon, lektor í dönskum bókmenntum, sem einnig stýrir umræðum.

Árið 2011 gaf Mathilde Walter Clark út smásagnasafn með titlinum Grumme historier (Grimmar sögur). Þessar sögur minna á Skuggann eftir H.C. Andersen, Sjö kynjasögur (Syv fantastiske fortællinger) eftir Karen Blixen og Furðulegar sögur (Sære historier) eftir Villy Sørensen. Í smásögum Mathilde gerast furðulegar atburðir: kona fisksalans breytist í fisk, matargagnrýnandi týnir líkamshluta í hvert skipti sem hann borðar sælkeramáltíð… En eru hugtökin ‚töfraraunsæi‘ og ‚fantasía‘ viðeigandi? Eða endurspegla þau þrönga bókmennta- og veruleikasýn? Ætti frekar að tala um heimspekilegar sögur? Til að svara þessum spurningum fjallar Mathilde um hvernig við sjáum hlutina. Mathilde telur að veruleikinn sé eitthvað sem við nálgumst og að ljóðræn skynjun sé leið til að nálgast raunheiminn. Á Íslandi er töfraraunsæishefðin mjög sterk og rithöfundurinn Einar Már Guðmundsson tekur þátt í umræðum um hvernig skilja megi tengslin á milli veruleika og bókmennta.

Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.

Viðburðurinn er skipulagður af Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum og námsleið í dönsku, með styrk frá Samstarfsnefnd um kennslu í Norðurlandafræðum erlendis og Kunststyrelsen, menningarstofnun Dana.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012