Hvenær hefst þessi viðburður:
25. mars 2015 - 16:00 til 18:00
Staðsetning viðburðar:

Heimildarmyndin Mission Blue fylgir eftir sjávarlíffræðinginum Sylviu Earle og samtökum hennar en þau berjast fyrir bættri umgengni við sjóinn. Þetta er fyrsta og eina tækifærið til að sjá myndina á Íslandi þar sem Netflix á sýningarrétt myndarinnar. Eftir myndina mun aðili frá samtökunum Mission Blue tala við áhorfendur í gegnum Skype og hægt verður að spyrja spurninga.
Viðburðurinn er skipulagður af GAIA – félagi meistaranema í umhverfis- og auðlindafræðum, í samvinnu við Norræna Húsið og Mission Blue. Þeir eru öllum opnir og frítt er inn.