Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Málstofa - Rannsókn á sögukennslu í íslenskum framhaldsskólum og fagþróun sögukennara.

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
8. apríl 2015 - 16:20 til 17:05
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
K-206
Súsanna Margrét Gestsdóttir
Súsanna Margrét Gestsdóttir, aðjunkt við Kennaradeild Háskóla Íslands og kennari við Fjölbrautaskólann við Ármúla: Rannsókn á sögukennslu í íslenskum framhaldsskólum og fagþróun sögukennara.

Ágrip: Sagt er frá doktorsrannsókn við Háskólann í Amsterdam sem hófst með þróun greiningartækis sem lýtur að sögulegri hugsun og hvernig kennarar geta stuðlað að því að nemendur tileinki sér hana. Þá hófst kortlagning sögukennslu í íslenskum framhaldsskólum sem nú stendur yfir en tæplega þrjátíu sögukennarar víða um land voru heimsóttir og nokkrar kennslustundir hjá hverjum og einum teknar upp. Frá þessu verður sagt í erindinu. Lokaþáttur rannsóknarinnar er tilviksrannsókn (Case Study) sem byggist á ákveðnu líkani (Lesson Study).

Upptökur frá fyrirlestrum í fyrri málstofuröðum um framhaldsskólarannsóknir eru aðgengilegar hér:  Þar verða jafnframt birtar upptökur af völdum fyrirlestrum úr þessari málstofuröð.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012