
Páll Rúnar M. Kristjánsson, lögmaður mun fjalla um álitamál við ráðningar, á málfundi Viðskiptafræðideildar.
Nýverið hafa komið upp álitamál er lúta að ákvæðum jafnréttislaga og framkvæmd ráðninga. Dómur féll í Hæstarétti á dögunum sem mun hafa afgerandi áhrif á afstöðu til kyns umsækjenda við ráðningar og mat á mögulegri mismunun.
Hefur þar verið tekist á um niðurstöður ráðningarviðtala, persónuleikaprófa, áherslur við ráðningu og fleira. Við meðferð mála hjá kærunefnd jafnréttismála hefur þáttum sem þessum verið veitt lítið vægi og talið réttara að horfa til hlutlægra mælikvarða þegar það kemur að því að meta mögulega mismunun á grundvelli kyns.
Sú afstaða hefur leitt af sér niðurstöður sem hafa verið mjög umdeildar með hliðsjón af viðteknum hugmyndum í mannauðsstjórnun.
Umræðustjóri: Svala Guðmundsdóttir, lektor í mannauðsstjórnun við Háskóla Íslands.
Allir velkomnir.