Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Skattadagur Orators 2015

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
14. mars 2015 - 12:00 til 18:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Litla torg
Háskóli Íslands

Laugardaginn 14. mars n.k. munu meistaranemar við Lagadeild Háskóla Íslands, í samstarfi við endurskoðunarfyrirtækið Deloitte, bjóða almenningi að koma til sín og fá endurgjaldslausa aðstoð við framtalsskil sín. 

Framtalsaðstoðin fer fram í hliðarsalnum við Háskólatorg (Litla torg) frá kl. 12:00-18:00. Boðið verður upp á kaffi og veitingar meðan á aðstoðinni stendur.

Þeir sem vilja nýta sér aðstoðina eru beðnir um að hafa með sér eftirfarandi:
• Veflykil RSK.
• Lykilorð og/eða auðkennislykil fyrir heimabanka, eftir því sem við á.
• Verktakamiða síðasta árs, ef við á.

Lögfræðiaðstoð Orators, Lagadeild Háskóla Íslands og Deloitte.
 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012