Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Félagsráðgjöf, hælisleitendur og flóttafólk: Áskoranir

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
11. mars 2015 - 12:00 til 13:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
stofa N 131
Háskóli Íslands

MARK – Miðstöð margbreytileika- og kynjarannsókna kynnir:

Erindi Guðbjargar Ottósdóttur um starf félagsráðgjafa í vinnu með hælisleitendum og flóttamönnum. Fyrirlesturinn byggir m.a. á eigindlegri doktorsrannsókn höfundar – viðtölum við við 28 hælisleitendur og flóttamenn og 17 starfsmenn í velferðarþjónustu í Bretlandi. Í starfi sínu glíma félagsráðgjafar í opinbera geiranum við töluverðar áskoranir í að mæta þörfum ‘berskjaldaðra hópa’ hælisleitenda og flóttamanna þar sem þeir búa við skert réttindi. Hvernig er hægt að sætta mannréttindasjónarmið og þarfir einstaklingsins? Fjallað er um það lagaumhverfi sem mótar starf félagsráðgjafa og réttindi hælisleitenda og flóttamanna og hvernig það kristallast í starfi.

Guðbjörg Ottósdóttir er aðjúnkt í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands.

Staður og stund:
Miðvikudagur 11. mars. kl. 12-13
Háskóli Íslands, Askja N-131.

Allir hjartanlega velkomnir

MARK  - Miðstöð margbreytileika- og kynjarannsókna   
 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012