Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Meistarafyrirlestur:Tengslanet og frumkvöðlar í ferðaþjónustu í tveimur sjávarplássum á Vestfjörðum

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
20. september 2013 - 15:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Stofa 131
Íris Hrund Halldórsdóttir

Íris Hrund Halldórsdóttir flytur fyrirlestur um verkefni sitt til meistaraprófs í ferðamálafræði. Fyrirlesturinn ber heitið Tengslanet og frumkvöðlar í ferðaþjónustu í tveimur sjávarplássum á Vestfjörðum.

Frumkvöðlar eru taldir vera mikilvægur þáttur í efnahagslegri uppbyggingu dreifbýlis. Því þarf að leggja sérstaka áherslu á að búa þeim þannig umhverfi að þeir nái að blómstra. Gott frumkvöðlaumhverfi veitir þeim stuðning og hvatningu til þess að hrinda hugmyndum sínum í framkvæmd. Í frumkvöðlafræðum hefur mikið verið skrifað um eiginleika frumkvöðulsins sjálfs og hvaða efnahagslegu undirstöður eru vænlegastar fyrir það fyrirtæki sem hann stofnar. Minna hefur verið skoðað hvernig nærumhverfi frumkvöðuls og frumkvöðlafyrirtækja geti haft áhrif á hann og starfsemina. Frumkvöðlafyrirtækið er að sjálfsögðu hluti af því nærumhverfi sem það er staðsett í og því þarf að athuga hvaða áhrif viðkomandi umhverfi getur haft á starfsemina. Markmiðið með rannsókninni var að komast að því hvort einhverjir þættir í menningar- og félagslegu nærumhverfi frumkvöðlafyrirtækja geti á einhvern hátt haft áhrif á tilurð og framgang þeirra. Gerð var þátttökuathugun í tveimur sjávarplássum á Vestfjörðum þar sem skoðuð voru tvö ferðaþjónustufyrirtæki sem voru að slíta barnskónum; annars vegar Sjóræningjahúsið á Patreksfirði og hins vegar Melrakkasetrið í Súðavík. Niðurstöður sýna að ýmsir þættir skipta máli og geta haft áhrif á aðstandendur fyrirtækjanna og uppbyggingu þeirra svo sem sjálfsemd staða (e. place identity) og þau félagslegu tengslanet (e. social networks) sem þeir voru hluti af eða stofnuðu til á uppbyggingartímanum. Niðurstöður sýna einnig að með því að hafa í huga hið félags- og menningarlega nærumhverfi frumkvöðlafyrirtækja þá fæst aukinn skilningur á breytileika hins félagslega fyrirbæris sem frumkvöðulsháttur er.

Leiðbeinendur: Dr. Katrín Anna Lund, dósent í ferðamálafræði og Dr. Karl Benediktsson, prófessor í landfræði.
Prófdómari: Dr. Örn Daníel Jónsson, prófessor í viðskiptafræði.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012