
Opinn fundur Lagastofnunar Háskóla Íslands
Kristinn M. Reynisson Mag.Jur., LL.M. og doktorsnemi við Lagadeild Háskólans í Árósum
Kristinn mun í erindi sínu fjalla um hvar mörk löggjafarvaldsins liggja við innleiðingu góðra stjórnarhátta í fyrirtækjum.Velt erupp spurningunni hvort þess sjáist merki, þ.m.t. utan Íslands, að handhafar löggjafarvaldsins hafi gefið til kynna hvaða stjórnarhættir geti talist "góðir"!
Vikið verður að dæmum úr EES/ESB- rétti er varða stefnumörkun og inngrip löggjafans er varða stjórnarhætti fyrirtækja,m.a. í tilefni af yfirstandandi endurskoðunnar á Stefnuvísum Efnahags- og Framfarastofnunarinnar um stjórnarhætti fyrirtækja (OECD Principles of Corporate Governance).
Fundarstjóri: Stefán Már Stefánsson, prófessor við Lagadeild Háskóla Íslands.
Allir velkomnir.
Kristinn M. Reynisson útskrifaðist frá Lagadeild HÍ árið 2011 og lauk LL.M námi við Háskólann í Stokkhólmi árið 2012 með áherslu á samkeppnisrétt. Hann stundar nú doktorsnám í félagarétti við Lagadeild Háskólans í Árósum.