Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Kynning á doktorsverkefni hjá Umhverfis- og byggingarverkfræðideild - Þorbjörg Sævarsdóttir

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
24. september 2013 - 16:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Stofa 152
Háskóli Íslands

Þriðjudaginn 24. september kynnir Þorbjörg Sævarsdóttir doktorsverkefni sitt í Umhverfis- og byggingarverkfræði. Verkefnið ber heitið: Þolhönnun vega á Norðurslóðum (e.Performance Design of Pavement Structures in the Northern Periphery).

Leiðbeinandi er Sigurður Erlingsson, prófessor við Umhverfis- og byggingarverkfræðideild Háskóla Íslands.

Útdráttur:
Aðferðir við burðarþolshönnun vega hafa til langs tíma byggt á reynslu. Hönnunin er, þrátt fyrir einfaldleikann, takmörkuð og niðurstöðurnar einhæfar og ógegnsæjar og því erfitt að aðlaga hana að óvenjulegum og nýjum aðstæðum. Víða er verið að þróa nýjar aflfræðilegar hönnunaraðferðir sem spá fyrir um niðurbrotshegðun vega. Hegðunin er háð mörgun ólíkum þáttum svo sem álagi, efnisvali, þykkt laga og umhverfisþáttum. Í dag er helsti veikleiki aflfræðilegra hönnunaraðferða takmörkuð þekking á áhrifum ýmissa umhverfisþátta, einkum hitastigs, frosts/þíðu skipta og raka, á efniseiginleika mismunandi laga vegarins og hver tengsl niðurbrot vegarins og umhverfisþáttanna eru. En þessir þættir eru mjög mikilvægir þegar verið er að skoða þynnar vegbyggingar sem eru mjög algengar á norðurslóðum. Aflfræðileg hönnunaraðferð í vegagerð byggir á því að aflfræði sé beitt við að ákvarða svörun vegbygginga við mismunandi hjólaálagi í ákveðnu loftslagi og síðan er beitt reynslusamböndum er byggja á tilraunaniðurstöðum við að ákvarða áhrif álagspúlsanna á vegbygginguna (þ.e. hrörnun vegbyggingarinnar) sem fall af tíma. Þess vegna er mikilvægt að bera saman niðurstöður reikninga við mælingar gerðar í vegbyggingum í fullri stærð. Hröðuð álagspróf (APT) þar sem vegbygging var prófuð með þungum bílhermi (HVS) og svörun mæld sem fall af tíma var notuð til að kanna og greina hvaða áhrif þungumferð og umhverfisskilyrði hefðu á vegbygginguna.

 

Þorbjörg Sævarsdóttir will introduce her doctoral thesis in Civil and Environmental Engineering on Tuesday 24th of september. The thesis is titled: Performance Design of Pavement Structures in the Northern Periphery.

The supervisor is Professor Sigurður Erlingsson at the Faculty of Civil and Environmental Engineering, University of Iceland.

Abstract:
Due to the complex behaviour of pavements most traditional pavement design is done with empirical methods that are based on long-term experience. Their main limitation is that they are simple and cannot be extrapolated with confidence beyond the conditions on which they are based. New mechanistic designing methods are being developed to predict the behaviour of road structures. The behaviour depends on many factors such as the applied loads, the materials used, the thickness of the layers and the environmental conditions. One of the main limitations today is the influence environmental conditions (such as temperature, frost/thaw variations and moisture) have on the materials and deterioration of road structures, but these factors are very important for thin flexible pavements common in the Northern Periphery. To model the behaviour adequately it is important to compare the results of mechanistic (numerical) analyses with actual measurements in a full scale structures. Here accelerated pavement tests (APT), where instrumented pavement structures are tested using a heavy vehicle simulator (HVS), are used to examine the influence environmental conditions have on road structures.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012