Hvenær hefst þessi viðburður:
12. febrúar 2015 - 10:00
Staðsetning viðburðar:
Nánari staðsetning:
Hátíðasal

Eric Sampane-Donkor ver doktorsritgerð sína í lýðheilsuvísindum, sem ber heitið: Rannsókn á heilablóðfalli í Suður-Gana: Faraldsfræði, lífsgæði og samfélagsviðhorf. A Study of Stroke in Southern Ghana: Epidemiology, Quality of Life and Community Perceptions.
Andmælendur eru dr. Adesola Ogunniyi, prófessor við University College Hospital í Nígeríu, og dr. Sigurður Guðmundsson, prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands. Umsjónarkennari og leiðbeinandi var dr. Vilmundur Guðnason, prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands. Auk Vilmundar sátu í doktorsnefnd dr. Patrick Bampoe, framkvæmdastjóri lækninga í Tamale í Gana, dr. Mayowa Owolabi, heila- og taugasérfræðingur við University College Hospital í Lagos, dr. Karl K. Andersen, prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands, og dr. Thor Aspelund, dósent við sömu deild. Magnús Karl Magnússon, prófessor og deildarforseti Læknadeildar Háskóla Íslands, stjórnar athöfninni.
Ágrip
Í Gana mælist heilablóðfall meðal efstu þriggja algengustu dánarorsaka og er ein helsta ástæða sjúkrahússinnlagna hjá fullorðnu fólki. Þrátt fyrir hátt og aukið álag á lýðheilsu sökum heilablóðfalls er fáar nýlegar rannsóknir tengdar málefninu að finna í landinu. Þar af leiðandi er lítil þekking til staðar um ýmsa þætti heilablóðfalls í Gana sem setur virku eftirliti miklar takmarkanir þar í landi. Markmið doktorsverkefnisins var að (a) lýsa faraldsfræðilegum einkennum þeirra sem lifðu af heilablóðfall í Suður-Gana (b) meta heilsutengd lífsgæði (HRQoL) þeirra sem lifa af heilablóðfall og bera kennsl á tilheyrandi áhrifaþætti (c) meta áhættu samfélagsáunninnar bakteríumigu meðal þeirra sem lifa af heilablóðfall (d) meta þekkingu, viðhorf og hegðun með tilliti til heilablóðfalls í suðurhluta Gana. Háþrýstingur var algengasti áhættuþátturinn (89%) meðal þeirra sem lifðu af heilablóðfall og sykursýki (29%) næstalgengust. HRQoL skor var frá 57,7% (vitræn geta) til 80,0% (andleg geta) hjá þeim sem lifðu af heilablóðfall. Skor samanburðarhópsins var 65,6% (vitræn geta) til 85,2% (andleg geta). Niðurstöður fjölliðugreiningar sýndu að forspárbreytur HRQoL hjá þeim sem lifa af heilablóðfall voru aldur, alvarleiki heilablóðfalls, tímalengd eftir heilablóðfall, endurtekning heilablóðfalla, tíðni hláturs og neikvæðar tilfinningar. Bakteríumiga var marktækt hærri hjá heilablóðfallssjúklingum (24,3%) miðað við samanburðarhóp (7,2%) með hlutfallslega áhættu upp á 3,36 (CI = 1.40-8.01, p = 0.006). Aðeins 40% (277) af 693 svarendum gátu bent rétt á heilann sem það líffæri sem skaddaðist í heilablóðfallinu. Eins voru <50% (347) svarenda sem gátu bent á þekkta áhættuþætti eða einhverja þekkta fyrirboða.
Um doktorsefnið Eric Sampane-Donkor er fæddur árið 1973, lauk grunn- og framhaldsnámi við University of Ghana og hóf doktorsnám við Háskóla Íslands 2012. Hann starfar nú sem vísindamaður á sviði heilbrigðisvísinda og lýðheilsu í Gana. Hann er kvæntur og á þrjú börn.