Hvenær hefst þessi viðburður:
31. janúar 2015 - 13:00 til 17:00
Staðsetning viðburðar:

Japanskar teiknimyndir, bardagalist, matur, menning og tónlist er meðal þess sem í boði verður á hinni árlegu Japanshátíð sem haldin verður á Háskólatorgi laugardaginn 31. janúar kl. 13-17. Þetta er í ellefta sinn sem hátíðin er haldin en hún hefur jafnan verið afar fjölsótt enda ótal uppákomur og forvitnilegar kynningar í boði.
Sem fyrr stendur námsbraut í japönsku máli og menningu við Hugvísindasvið Háskóla Íslands að hátíðinni ásamt sendiráði Japans á Íslandi og hafa bæði nemendur í japönsku við Háskóla Íslands og samfélag Japana á Íslandi unnið hörðum höndum að skipulagningu hennar og munu kynna ýmsar hliðar japanskrar menningar á einstakan og skapandi hátt.
Gestum á Japanshátíð býðst m.a. að smakka japanskan mat, fá nafn sitt ritað á japönsku, kynnast japanskri tungu á sérstökum tungumálabás ásamt því að skoða glæsilega Ikebana-blómaskreytingu . Á fyrstu hæð Háskólatorgs geta gestir svo kynnt sér japanska list og listmuni ásamt leikjum og spreytt sig á bæði origami og manga-teikningu.
Japönsk dægurmenning mun einnig skipa veglegan sess á hátíðinni, þar á meðal heimildamyndir, anime- og manga-teiknimyndir ásamt kvikmyndum og sjónvarpsþáttum frá Japan. Enn fremur verður kynning á japanskri dægurtónlist (J-pop) og þá mun hljómsveit spila lög úr þekktum Anime-teiknimyndum ásamt hefðbundinni japanskri tónlist. Jafnframt stíga sérfræðingar í japanskri bardagalist á stokk og sína listir sínar.
Einn af hápunktum Japanshátíðarinnar síðustu ár hefur verið svokölluð Cosplay-búningakeppni en þar klæðast keppendur búningum byggðum á frægum persónum úr japönskum teiknimyndum. Ólíkt fyrri árum verður keppnin í tvem riðlum, masquerade sem er fyrir alla og meir til gamans, og svo cosplay, þar sem að fyrsti vinningur er ferð til Svíþjóðar til að keppa fyrir hönd Íslands í búningahönnun. Yfir 15 þátttakendur hafa þegar skráð sig til leiks og ljóst er að samkeppnin um besta búninginn verður hörð.
Almennar upplýsingar um nám í japönsku, hina ýmsu skólastyrki og skiptinám við japanska háskóla verða aðgengilegar á hátíðinni en auk þess geta gestir kynnt sér Íslensk-japanska félagið og Félag Japansmenntaðra á Íslandi.
Ókeypis er á Japanshátíðina á Háskólatorgi og eru allir velkomnir.