Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Doktorsvörn í líf- og læknavísindum - Erla Björnsdóttir

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
22. janúar 2015 - 13:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Hátíðasal
Erla Björnsdóttir

Erla Björnsdóttir ver doktorsritgerð sína í líf- og læknavísindum, sem ber heitið: Svefnleysi, þunglyndi og lífsgæði sjúklinga með kæfisvefn. Insomnia, depression and quality of life among patients with obstructive sleep apnea.

Andmælendur eru dr. Jerker Hetta, prófessor og sérfræðingur í geðlækningum við Karolinska Institutet í Stokkhólmi, og dr. Heiðdís Valdimarsdóttir, PhD sálfræðingur og prófessor við Háskólann í Reykjavík og Mount Sinai School of Medicine í New York.

Umsjónarkennari var dr. Bryndís Benediktsdóttir, prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands, og leiðbeinandi var dr. Jón Fr. Sigurðsson, prófessor við sömu deild. Auk þeirra sátu í doktorsnefnd dr. Þórarinn Gíslason, einnig prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands, Allan I. Pack, prófessor við University of Pennsylvania og Samuel T. Kuna, prófessor við University of Pennsylvania

Magnús Karl Magnússon, prófessor og deildarforseti Læknadeildar Háskóla Íslands, stjórnar athöfninni.

Ágrip
Sjúklingar með kæfisvefn sofa gjarnan óvært, þjást af svefnleysi og rannsóknir benda til aukinnar tíðni þunglyndis meðal þeirra. Megin tilgangur þessarar rannsóknar var að kanna svefnleysi, þunglyndi og lífsgæði sjúklinga með kæfisvefn. Í fyrsta lagi var algengi þessara þátta rannsakað sem og tengsl þeirra við alvarleika kæfisvefns. Í öðru lagi var skoðað hvernig þessir þættir breytast við meðferð kæfisvefns og að lokum hvort þessir þættir hafi áhrif á meðferðarheldni við kæfisvefni.
Niðurstöður sýndu að meirihluti sjúklinga með ómeðhöndlaðan kæfisvefn er með einkenni svefnleysis, lífsgæði þeirra eru slök og um fimmtungur þeirra er með þunglyndi. Það að eiga erfitt með að sofna á kvöldin og að vakna of snemma á morgnana lagast ekki þó svo að kæfisvefn sé vel meðhöndlaður og þessi einkenni svefnleysis hafa neikvæð áhrif á meðferðarheldni. Að vakna oft á nóttunni lagast hjá þeim sjúklingum sem nota svefnöndunartæki sem virðist þannig einkenni ómeðhöndlaðs kæfisvefns frekar en raunverulegt svefnleysi. Þeir sem nota svefnöndunartæki bæta lífsgæði sín ekki meira en þeir sem hætta notkun svefnöndunartækis. Kæfisvefn hefur margvíslega fylgikvilla, eins og svefnleysi og þunglyndi, sem hafa neikvæð áhrif á lífsgæði sjúklinga. Þessa þætti þarf að taka til greina og meðhöndla frekar þegar þörf er á.

Um doktorsefnið
Erla Björnsdóttir er fædd árið 1982. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri árið 2003 og BS prófi í sálfræði frá Háskóla Íslands árið 2007. Erla lauk Cand Psych. prófi frá Háskólanum í Árósum 2009 og innritaðist í doktorsnám við Læknadeild Háskóla Íslands árið 2010. Hún er gift Hálfdani Steinþórssyni og saman eiga þau fjóra syni, Steinþór Snæ, Björn Diljan, Frosta og Bjart. Foreldrar Erlu eru Björn Magnússon, lungnalæknir, og Anna Sigurveig Ólafsdóttir, hjúkrunarfræðingur.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012