Hvenær hefst þessi viðburður:
12. desember 2014 - 10:00
Staðsetning viðburðar:

Doktorsvörn í Félagsráðgjafardeild:
Sveinbjörg Júlía Svavarsdóttir
12. desember 2014 - 10:00
LÍFSGÆÐI FÓLKS MEÐ GEÐRÆNAN VANDA
Í SÍBREYTILEGU SAMFÉLAGI
INNRI OG YTRI ÁHRIF STOFNANA Á ENDURHÆFINGU
Föstudaginn 12. desember ver Sveinbjörg Júlía Svavarsdóttir doktorsritgerð sína, „Quality of Life for People with Mental Illness in a Changing Society - Intra- and Inter-institutional Effects on Psychiatric Rehabilitation -“ við Félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands.
Vörnin fer fram í Öskju, H.Í. kl. 10:00 og er öllum opin. Andmælendur eru Dr. Katarina Piuva, prófessor við Stockholms Universitet og Dr. Engilbert Sigurðsson, prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands. Leiðbeinandi var Dr. Sigrún Júlíusdóttir, prófessor við Félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands. Aðrir í doktorsnefnd voru Dr. Rafael Lindqvist, prófessor við Uppsala Universitet og Dr. Páll Matthíasson, forstjóri LSH.
Heilbrigði og þar með geðheilbrigði er veigamikill þáttur í lífi fólks og einn af hornsteinum lífsgæða og velgengni. Meginmarkmið doktorsritgerðarinnar (180 ECTS), sem byggir á megindlegum og eigindlegum rannsóknum, auk orðræðugreiningar, er að varpa ljósi á þá margþættu erfiðleika sem geðræn veikindi valda einstaklingum, fjölskyldum, stofnunum og samfélaginu í heild. Greint er frá fræðilegum bakgrunni og hugmyndum um geðræn veikindi er lýst í sögulegu og félagslegu samhengi. Áhersla er lögð á að viðhorf fólks til þeirrar endurhæfingar, sem það hefur fengið, komi skýrt fram.
Megin niðurstöður benda til þess að margir þættir geti dregið úr möguleikum á bata þeirra sem eiga við geðræna erfiðleika að etja. Oft virðist vera of lítil samvinna stofnana og þeirra sem koma að endurhæfingunni. Eftirfylgni eftir að bráðaveikindi eru gengin yfir, virðist oft vera ónóg og vandinn endurtekur sig. Heildræn sýn er oft ekki næg þegar unnið er að endurhæfingu og starfsfólk hefur stundum ekki næga innsýn í þarfir þeirra, sem á þjónustu þurfa að halda. Þetta getur valdið lakari lífsgæðum. Í rannsókninni kemur fram að starfsfólk telur að endurhæfing skili betri árangri en fólkið sem tekur við þjónustunni telur sjálft.
Niðurstöður geta verið framlag til frekari rannsókna og stefnumótandi umræðna um geðheilbrigði.
Sveinbjörg Júlía er fædd 18. maí 1954. Hún lauk B.A. prófi í þjóðfélagsfræði frá HÍ, 1985, félags-ráðgjöf frá HÍ, 1988 og meistaraprófi (MSW) frá Göteborgs Universitet árið 2000. Sveinbjörg Júlía starfaði hjá félagsmálastofnun Reykjavíkur, en lengst af við LSH, þar af í 8 ár, sem forstöðu-félagsráðgjafi. Eiginmaður hennar er Leifur Steinn Elísson, hagfræðingur og eiga þau fjögur börn, Elfu Dögg, Unni Mjöll, Sindra Snæ og Silju Ýr.
Hægt er að ná í Sveinbjörgu í síma 866 2296 eða í gegnum vefpóst svjsv@hotmail.com.