Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Kvenheimspekingar koma í kaffi: Gyðja Parmenídesar

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
12. september 2013 - 15:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Stofa 103

Námsbraut í heimspeki við Háskóla Íslands heldur áfram að kynna kvenheimspekinga í haust undir yfirskriftinni: Kvenheimspekingar koma í kaffi. Efnt verður til erinda annan hvern fimmtudag kl. 15-16 í Lögbergi. (Sjá haustdagskrá -pdf).

Eiríkur Smári Sigurðsson heldur fyrsta erindið á þessu hausti og fjallar um Gyðju Parmenídesar.

Parmenídes, mesti skynsemishyggjumaður forvera heimspekinnar, setur kenningar sínar í munn gyðju sem hann hittir í handanheimum. Hún tekur á móti honum, ungum manninum, og leiðir í allan sannleikann um heiminn. Í kaffi dagsins verður þessi saga skýrð og nokkrar túlkanir á henni ræddar og hún m.a. skoðuð í ljósi annarra frásagna af gyðjum og ungum mönnum sem hitta þær til að læra sannleikann (t.d. Hesíódos og Sókrates). Gyðja Parmenídesar er vissulega ekki heimspekingur í sama skilningi og (flestar) aðrar sem er fjallað um í kvenheimspekikaffinu en hún getur þó varpað ljósi á stöðu kvenna og hins kvenlega í upphafi heimspekisögu Vesturlanda.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012