Hvenær hefst þessi viðburður:
31. janúar 2015 - 8:00 til 17:00
Nánari staðsetning:
Háskólabíó

Hin árlega First Lego League hönnunarkeppni fer fram í Háskólabíói laugardaginn 31. janúar. 20 lið úr grunnskólum víðs vegar af landinu hafa skráð sig til leiks í spennandi keppni sem er í umsjá Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands og Menntavísindasviðs Háskóla Íslands.
Markmið keppninnar er að vekja áhuga ungs fólks á vísindum og tækni, sem og að efla sjálfstraust, leiðtogahæfni og lífsleikni.
Keppendur eru á aldrinum 9-16 ára. Í hverju liði eru 6-10 börn og a.m.k. einn fullorðinn liðsstjóri. Öll lið fá senda þrautabraut átta vikum fyrir keppni til að undirbúa sig, en unnið er með nýtt viðfangsefni á hverju ári. Þemað í ár er World Class.
Allir velkomnir.