
Johanna Mareile Schwenteit ver doktorsritgerð sína í líf- og læknavísindum, sem ber heitið: Rannsóknir á sýkingarmætti Aeromonas salmonicida undirteg. achromogenes í bleikju, Salvelinus alpinus L., með áherslu á hlutverk AsaP1 peptíðasa í seyti bakteríunnar eða Studies of Aeromonas salmonicida subsp. achromogenes Virulence in Arctic charr, Salvelinus alpinus L., with Focus on the Conserved Toxic Extracellular Metalloendopeptidase AsaP1.
Andmælendur eru dr. Henning Sørum, prófessor við Dýralæknaháskólann í Ósló, og dr. Ingileif Jónsdóttir, prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands.
Umsjónarkennari og leiðbeinandi var dr. Bjarnheiður K. Guðmundsdóttir, vísindamaður og kennslustjóri framhaldsnáms í Læknadeild Háskóla Íslands. Auk Bjarnheiðar sátu í doktorsnefnd þeir dr. Guðmundur Óli Hreggviðsson, prófessor við Líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands, dr. Ólafur Héðinn Friðjónsson, verkefnisstjóri hjá Matís ehf, dr. Uwe Bornscheuer, prófessor við Ernst-Moritz-Arndt háskólann í Greifswald í Þýskalandi og dr. Uwe Fischer, ónæmisfræðingur við Friedrich-Loeffler-Institut Insel Riems í Þýskalandi.
Magnús Karl Magnússon, prófessor og deildarforseti Læknadeildar, stjórnar athöfninni.
Ágrip
Bakterían Aeromonas salmonicida undirteg. achromogenes veldur kýlaveikibróður í fiski. AsaP1 er eitraður peptíðasi, sem bakterían seytir, og öflugur ónæmisvaki. AsaP1-neikvætt stökkbrigði bakteríunnar hefur veiklaðan sýkingarmátt. Sú tilgáta hefur því komið fram að AsaP1 geti vakið verndandi ónæmissvar og kunni að vera áhugaverður mótefnavaki til að nota í fiskabóluefni.
Niðurstöður doktorsverkefnisins leiddu í ljós að sýkingarmætti bakteríunnar og framleiðslu hennar á AsaP1, frumueitri og brúnu litarefni, er stjórnað með samskiftakerfi baktería sem nefnist þéttniskynjun. Greining á þáttum í ónæmissvari bleikju með RT-qPCR prófi sýndi að það var munur á ónæmissvari sem vakið var af villigerð bakteríunnar og AsaP1-neikvæðum stofni. Þetta bendir til þess að AsaP1 sé mikilvægur mótefnavaki við myndun hýsilvarnar. Útbúin voru óeitruð stökkbrigði af AsaP1 ensíminu, sem mynduðu samt mótefnasvar (toxoíðar) og byggingargeni þeirra var komið fyrir í bakteríunni í stað asaP1 gensins. Bóluefni byggt á stofni sem seytir AsaP1-toxoíð var útbúið og notað til að bólusetja bleikju. Tilraunasýking leiddi í ljós að bóluefnið veitir öfluga vörn gegn kýlaveikibróður.
Niðurstöðurnar auka við þekkingu á eðli og sýkingarmætti A. salmonicida undirteg. achromogenes og samspili þessa sýkils við hýsil, bæði í sýkingu og við myndun ónæmisvarnar.
Um doktorsefnið
Johanna Mareile Schwenteit er fædd árið 1983. Hún lauk diplomaprófi frá Ernst-Moritz-Arndt Universität Greifswald árið 2008. Johanna, sem innritaðist í doktorsnám við Læknadeild Háskóla Íslands árið 2007, er búsett í Þýskalandi og gift Felix Oskar Schwenteit. Þau eiga synina Frederik Ole og Jonte Augustin. Johanna er dóttir Götz Hentschke og Birgit Hentschke-Huchthausen.