
Guðný Lilja Oddsdóttir ver doktorsritgerð sína í líf- og læknavísindum, sem ber heitið: Hreyfistjórn í hálsi – Flugan sem nýtt greiningartæki fyrir hreyfistjórn hálshryggjar eða Movement control of the cervical spine – The Fly as a new objective assessment method for whiplash-associated disorders.
Andmælendur eru dr. Eva-Maj Malmström, prófessor við Háskólann í Lundi, og Mikael Karlberg, dósent og yfirlæknir við ÖNH-kliniken í Svíþjóð.
Leiðbeinandi í verkefninu var dr. Eyþór B. Kristjánsson, sjúkraþjálfari, og umsjónarkennari var María Þorsteinsdóttir, sjúkraþjálfari og dósent við Læknadeild Háskóla Íslands. Auk þeirra sátu í doktorsnefnd dr. Hannes Petersen, prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands, dr. Ella Kolbrún Kristinsdóttir og dr. Michele Sterling.
Dr. Magnús Karl Magnússon, prófessor og forseti Læknadeildar, stjórnar athöfninni.
Ágrip
Flugan er próf sem þróað var til að mæla stjórn hálshreyfinga í rauntíma. Þrívíddargreinir var notaður í Fluguprófinu og var hann tengdur sérhönnuðu hugbúnaðarforriti. Hreyfiskynjarar eru festir á höfuð þátttakandans og hann beðinn um að nota hálshreyfingar til að fylgja nákvæmlega eftir bendli (flugu) sem hreyfist á tölvuskjá. Nákvæmni í hálshreyfingum var metin við að fylgja bendlinum eftir í þremur stigvaxandi erfiðum hreyfimynstrum.
Doktorsritgerðin fjallar um þróun Fluguprófsins og notagildi þess við að greina hreyfistjórn í hálsi hjá einstaklingum með hálsverki.
Rannsóknirnar sem doktorsritgerðin byggir á sýndu að Flugan er réttmætt og áreiðanlegt próf til að meta hreyfistjórn í hálsi. Með Fluguprófinu var hægt að meta nákvæmlega skerðingu á hreyfistjórn í hálsi hjá einstaklingum með hálseinkenni eftir hálshnykksáverka og aðgreina frá hópi þeirra sem hafa hálsverki af álagstengdum toga sem og einkennalausum samanburðarhópi. Stigvaxandi erfiðleikastig prófsins gera það að verkum að hægt er að greina með nákvæmni hve mikil skerðing einstaklingsins er og því hægt að hefja þjálfun hans á viðeigandi stigi og fylgjast með framförum. Fluguprófið var einnig notað til að fylgjast með þróun hálseinkenna einstaklinga í eitt ár eftir aftanákeyrslu en helmingur þátttakenda í þeirri rannsókn sýndi vaxandi skerðingu á stjórn hálshreyfinga yfir árið. Jafnframt var skoðað notagildi prófsins við að greina einstaklinga sem gera sér upp einkenni eftir hálshnykksáverka. Þær niðurstöður leiddu í ljós jákvæðar vísbendingar en sú aðferð er í áframhaldandi þróun.
Um doktorsefnið
Guðný Lilja, sem er fædd árið 1956, lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Ísafirði árið 1976, BS-gráðu í sjúkraþjálfun frá Háskóla Íslands árið 1981 og sérfræðiprófi í Manual Therapy frá University of St.Augustine árið 2000. Hún hefur starfað sem sjúkraþjálfari við Heilsugæslustöð Kópavogs, hjá HL stöðinni og á eigin stofu, Sjúkraþjálfun Kópavogs. Árið 2006 lauk Guðný Lilja MS-gráðu í líf og læknavísindum frá Læknadeild Háskóla Íslands og innritaðist í doktorsnám sama ár. Guðný Lilja starfar við Sjúkraþjálfun Kópavogs og sem stundakennari við Háskóla Íslands. Hún er gift Árna Sigurðssyni og eiga þau tvo syni, Bjarna og Árna Þór.