Hvenær hefst þessi viðburður:
28. febrúar 2015 - 12:00 til 16:00

Háskóli Íslands býður landsmönnum á öllum aldri í heimsókn laugardaginn 28. febrúar 2015 þar sem í boði verða ótal viðburðir, kynningar og uppákomur sem sýna vísindin í litríku og lifandi ljósi.
Gestir geta kynnt sér fjölbreytt námsframboð háskólans en yfir 400 námsleiðir í grunn- og framhaldsnámi eru í boði við Háskóla Íslands. Þá fer einnig fram kynning á marþættri starfsemi og þjónustu skólans og gestir geta skoðað rannsóknastofur, tæki, búnað og húsakynni. Á staðnum verða vísindamenn og nemendur úr öllum deildum skólans sem svara spurningum um allt milli himins og jarðar – eða því sem næst.