
Richard Wilson, Sir Peter Hall Professor of Shakespeare Studies við Kingston-háskóla í Lundúnum, heldur hádegisfyrirlestur á vegum Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur mánudaginn 17. nóvember. Fyrirlesturinnn fer fram á ensku og ber yfirskriftina „Come Unto These Yellow Sands: Shakespeare's Other Heading“ og fjallar um Shakespeare og tengsl Evrópu og Afríku, síðnýlenduhyggju og Ofviðrið (The Tempest) út frá hugmyndafræði franska heimspekingsins Jacques Derrida.
Richard Wilson er virtur fræðimaður á alþjóðlegum vettvangi. Hann kenndi við háskólana í Cardiff, Lancaster og Sorbonne áður en hann var útnefndur Sir Peter Hall Professor of Shakespeare Studies við Kingston-háskóla í Englandi. Hann á sæti í stjórn Rose-leikhússins og er Fellow við The Globe leikhúsið í Lundúnum.
Richard Wilson hefur skrifað margar bækur og greinar, þ.a.m.
- Free Will: Art and Power on Shakespeare's Stage (2013)
- Shakespeare in French Theory: King of Shadows (2006)
- Secret Shakespeare: Studies in Theatre, Religion and Resistance (2004)
- Will Power: Essays on Shakespearean Authority (1993).